Applicon hefur þróað sérstaka lausn fyrir sjávarútveginn
 

Sjávarútvegslausn Applicon uppfyllir allar helstu þarfir sem sjávarútvegsfyrirtæki gera til upplýsingakerfa. Allt frá veiðum og vinnslu til sölu og dreifingar. Lausnin byggir á stöðluðum viðskiptahugbúnaði frá SAP sem ráðgjafar Applicon hafa stillt til að þjóna best þörfum sjávarútvegsfyrirtækja. 

Lausnin var þróuð af Applicon, í samvinnu við Samherja og Marel, og tekur sérstaklega tillit til þeirra margvíslegu breytinga sem átt hafa sér stað í íslenskum sjávarútvegi á undanförnum árum. 

Samherji hefur innleitt sjávarútvegslausnina hjá starfsstöðvum fyrirtækisins í Bretlandi, Póllandi, Þýskalandi og Kanaríeyjum. Þá hefur Skinney Þinganes einnig tekið lausnina í notkun.

Helstu eiginleikar Applicon sjávarútvegs

  • Löndun á hráefni og frystum afurðum.
  • Innkaup á hráefni.
  • Framleiðsluskráning, ráðstöfun hráefnis og skráning afurða.
  • Birgðahald, flutningur á birgðum milli geymsla.
  • Sala á afurðum og reikningagerð.
  • Skráning á flutning og utanumhald flutningskostnaðs.
  • Rekjanleiki vara tryggður með lotunúmeri.
  • Launakerfi fyrir landvinnslu og sjómenn.
  • Fjárhagur, innra og ytra bókhald.
  • Tenging möguleg við framleiðslukerfi Marels.

Helstu eiginleikar Applicon Laun Sjávarútvegs

  • Veiðiferðakerfi
  • Launauppgjör sjómanna
  • Safnferðir
  • Skýrslugerð

Helsti ávinningur

  • Eitt launakerfi fyrir alla starfsmenn, jafnt á sjó og landi, sem einfaldar alla launavinnslu.
  • Aukið aðgengi stjórnenda að upplýsingum til ákvarðanatöku, áætlanagerðar og stýringar á kostnaði.
  • Bætt vörustjórnun með lausn sem heldur utan um virðiskeðjuna frá birgjum, skipum, vinnslu og til viðskiptavina.
  • Lágmarks tilkostnaður og réttur afhendingartími.
  • Möguleiki á tengingum við framleiðslukerfi Marels – Innova – sem leiðir til skilvirkara upplýsingaflæðis og tímasparnaðar.