Applicon hefur þróað sérstaka lausn fyrir  sveitarfélög.

Umhverfi sveitarfélaga tekur sífelldum breytingum sem kallar á öflug og sveigjanleg upplýsingakerfi.

Sameiningar á sveitarstjórnarstiginu og nýlegar breytingar á reikningsskilum sveitarfélaga eru góð dæmi um slíkar breytingar. Gerðar eru auknar kröfur til sveitarfélaga um að bæta þjónustu og lágmarka kostnað þannig að verðmæti starfseminnar fyrir samfélagið sé hámörkuð.

Applicon hefur lagt áherslu á að þjónusta sveitarfélög vel og hafa ráðgjafar fyrirtækisins viðamikla reynslu og þekkingu á starfseminni.
Applicon hefur þróað lausn fyrir sveitarfélög sem innleidd hefur verið hjá Akureyrarbæ.

Lausnir Applicon fyrir sveitarfélög eru eftirfarandi

  • Applicon Sveitarfélög
  • Applicon Mannauður
  • Applicon Laun
  • Applicon þjónustuvefur
  • Applicon Starfsmannavefur
  • Applicon Umsóknarvefur
  • Applicon Mötuneytislausn 
  • Samstæðuuppgjör (Consolidation)