26.06.2006

,,Höfum lagt grunn að alþjóðlegu fjárhagskerfi fyrirtækisins" segir Ragnar Þór Ragnarsson, framkvæmdastjóri Upplýsingasviðs

Ragnar Þór Ragnarsson, framkvæmdastjóri Upplýsingasviðs Samskipa, segir að fyrirtækið sé með innleiðingu á SAP að koma upp fjárhagsupplýsingaumhverfi sem verði grunnur að alþjóðlegu kerfi fyrir alla starfsemi Samskipa og dótturfélaga þess, bæði hér heima og erlendis. “Markmið fyrsta áfanga verkefnisins var innleiðing fjárhags-, innkaupa- og afkomugreiningar í starfssemi félagsins á Íslandi. Við höfum einsett okkur að nýta innbyggða ferla í SAP við endurhönnun okkar eigin verkferla. Þetta mun til framtíðar litið koma á skilvirkari rekstri í okkar starfssemi ef við lítum til þeirrar alþjóðlegu starfssemi sem við búum nú við”. Með því að nýta SAP munu Samskip m.a. fækka innri færslum milli rekstrareininga samstæðunnar og þannig einfalda störf og hagræða með einsleitu fjárhagskerfi. “Á heildina litið erum við ánægð og teljum okkur hafa gert rétt með því að horfa til birgja á borð við SAP og samstarfsaðila okkar AppliCon”.

Virðisaukandi samstarf AppliCon og Samskips
AppliCon hefur starfað með mörgum af stærstu fyrirtækjum Íslands við uppbyggingu upplýsingakerfa og aðstoðað þau við skapa tækifæri í starfsemi sinni með bættri upplýsingagjöf og hagræðingu í rekstri  Grunnur að flestum verkefnum er fjárhagskerfi og stýrir Guðbjörg Árnadóttir hópi ráðgjafa á þessu sviði. “Samstarfið við Samskip hefur gengið vel og hefur verið ánægjulegt að vinna með þeim að innleiðingunni” segir Guðbjörg. “Miðað við þann grunn sem settur hefur verið upp hjá Samskip á Íslandi þá sé ég fyrir mér að innleiðing á erlendar starfsstöðvar muni ganga vel fyrir sig, en stefnt er að því að halda áfram innleiðingu kerfisins erlendis þegar á árinu 2006”.

Samskip hf.
Félagið var stofnað árið 1990 og hefur að hlutverki að veita viðskiptavinum alþjóðlegar, eftirsóknarverðar og áreiðanlegar heildarlausnir á sviði flutninga og flutningatengdrar þjónustu. Samskip hafa byggt upp heildarþjónustu á sviði flutninga, vörustýringar og vörumeðhöndlunar, innanlands sem utan. Hjá félaginu starfa um 1.400 manns á 62 starfsstöðvum í 22 löndum.

AppliCon á Norðurlöndum
AppliCon er eitt stærsta óháða SAP ráðgjafarfyrirtækið á Norðurlöndum með um 120 starfsmenn í þremur starfsstöðvum á Íslandi og í Danmörku. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaða ráðgjöf á sviði SAP og Microsoft hugbúnaðarlausna. Einnig býður AppliCon upp á lausnir sem skila viðskiptavinum ávinningi hratt og örugglega.

 

Nánari upplýsingar veitir Kristján Jóhannsson, framkvæmdastjóri AppliCon ehf., í síma 563 6100 eða í netfanginu kjo@applicon.is og Ragnar Þór Ragnarsson, í síma 458 8000.