03.10.2006
Tímaritið Computerworld í Danmörku kynnti fyrir skömmu niðurstöður árlegrar könnunar sinnar á bestu þjónustufyrirtækjum í upplýsingatæknigeiranum þar í landi. Þar var Applicon valið eitt af þremur bestu fyrirtækjunum í kerfissamþættingu, þriðja árið í röð.
Computerworld velur bestu þjónustufyrirtækin í upplýsingatæknigeiranum árlega með könnun meðal viðskiptavina fyrirtækjanna þar sem þjónustan er flokkuð niður eftir ýmsum sviðum. Að hljóta þessa viðurkenningu þriðja árið í röð sýnir að Applicon hefur náð frábærum og stöðugum árangri í samþættingu kerfa (system integration), sem er einn mikilvægasti þátturinn í því að hámarka nýtingu upplýsingatækninnar.
