04.10.2006

Glitnir innleiðir SAP áætlanakerfið:
Glitnir hefur tekið í notkun SAP áætlanakerfi í samvinnu við AppliCon.  Þetta er liður í innleiðingu bankans á fjárhagssvítu SAP, en áður hafa hlutar kerfisins fyrir samstæðuskil og fjárhags- og innra bókhald verið teknir í notkun.

Stjórnendur Glitnis vinna flóknar áætlanir
SAP áætlanakerfið er öflugt tól fyrir stjórnendur.  Kerfið leysir flókna útreikninga sem notaðir eru í áætlanagerð bankans. Yfir 100 stjórnendur hjá Glitni, bæði hér á landi og erlendis, munu nota kerfið og nýta það til að vinna áætlanir fyrir sínar deildir. Aðgangur notenda að kerfinu er í gegnum einfalt vefviðmót, sem gerir alla notkun þess sem þægilegasta.

Gott skipulag skilaði árangri
Innleiðing kerfisins stóðst allar tímaáætlanir og stóð yfir á um þriggja mánaða tímabili sl sumar. Að verkinu komu sérfræðingar AppliCon á Íslandi í samvinnu við systurfyrirtæki sitt, AppliCon í Danmörku. Að sögn Tómasar Einarssonar þróunarstjóra SAP hjá Glitni , sem stýrði innleiðingunni fyrir þeirra hönd, var gott samstarf Glitnis og AppliCon lykillinn að vel heppnaðri innleiðingu. „Vel skilgreind áætlun og gott skipulag gegndu lykilhlutverki í því að halda okkur innan áætlunar, auk þess sem reynsla starfsmanna skipti miklu máli. SAP áætlanakerfið er jafnframt mjög meðfærilegt í uppsetningu, sérstaklega í ljósi þess hversu flókin verkefni það leysir,“ segir Tómas.

Ánægjuleg niðurstaða fyrir Glitni
Anna Þóra Aradóttir stýrir áætlanagerð Glitnis og er mjög ánægð með hvernig til tókst. „Satt best að segja þorði ég ekki að vona að svona vel myndi ganga, því innleiðing af þessari stærðargráðu er afskaplega flókið ferli,“ segir hún. Að sögn Önnu mun SAP áætlanakerfið nýtast stjórnendum vel við áætlanagerðina. SAP áætlanakerfið ræður við mjög flókna útreikninga og mun án efa skipta miklu máli fyrir vinnu stjórnenda Glitnis í framtíðinni.“

Mikil reynsla innan AppliCon
Guðbjörg Árnadóttir er hópstjóri Fjárhagshóps AppliCon og segir hún að mikil reynsla sé orðin til hjá AppliCon fyrirtækjunum af viðlíka verkefnum, sem skili sér beint til viðskiptavina.  Okkar ráðgjafar hafa unnið töluvert með íslenskum fyrirtækjum í útrás þeirra og þannig öðlast þá reynslu sem þarf til að innleiða flókna alþjóðlega ferla.  Í Applicon starfa um 20 ráðgjafa á sviði fjárhagslausna. 


--------------------------------------------------------------------------------
 
AppliCon er eitt stærsta óháða SAP ráðgjafarfyrirtækið á Norðurlöndum með um 120 starfsmenn í þremur starfsstöðvum á Íslandi og í Danmörku. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaða ráðgjöf á sviði SAP og Microsoft hugbúnaðarlausna. Einnig býður AppliCon upp á lausnir sem skila viðskiptavinum ávinningi hratt og örugglega. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Árnadóttir hópstjóri Fjárhagshóps í síma 563 6100.

Glitnir er fjármálafyrirtæki sem byggir á traustum grunni fjölmargra banka og sjóða sem gegnt hafa mikilvægu hlutverki í efnahagslegum framförum á Íslandi og bættum lífskjörum almennings í meira en 100 ár. Glitnir lítur á Noreg og Ísland sem sinn heimamarkað. Til að undirstrika það er þjónusta bankans veitt undir nafninu Glitnir frá mars 2006. Nánari upplýsingar veitir Tómas Einarsson Þróunarstjóri SAP í síma 440 4000.