19.10.2006

Fjallað er um upplýsingatæknistefnu Kaupþings (KB banka) í nýlegri grein í hinu virta sænska tímariti ComputerSweden. Þar er áhersla lögð á hversu vel Kaupþing hefur ráðið við öra stækkun samsteypunnar með innleiðingu staðlaðra upplýsingatæknilausna. Í hvert sinn sem Kaupþing kaupir nýtt fyrirtæki inn í samsteypuna er hvatt til þess að upplýsingatæknikerfi hins nýja fyrirtækis sé skipt út og staðlað SAP-upplýsingatæknikerfi Kaupþings innleitt í þess stað.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem SAP-lausn Kaupþings og upplýsingatæknistefna fyrirtækisins vekja athygli því breska tímaritið The Banker, sem er fagtímarit um bankastarfsemi, veitti Kaupþingi viðurkenningu í sumar fyrir árangursríkasta verkefnið innan kjarnabankastarfsemi. AppliCon hefur haft yfirumsjón með innleiðingu SAP-lausnarinnar hjá Kaupþingi.

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Í greininni í ComputerSweden segir að áður fyrr hafi einstök fyrirtæki innan samsteypunnar notað mismunandi upplýsingatæknikerfi, sem leiddi til mikils kostnaðar í viðhaldi og hamlaði vöruþróun. Því hafi verið ákveðið að grípa til staðlaðra lausna og leggja áherslu á að innleiða þær í fyrirtækjum sem keypt eru inn í samsteypuna, jafnvel þótt það geti mætt nokkurri andstöðu í fyrstu.

Kaupþing notar SAP-kerfi við grunnvinnslu sína og hefur AppliCon séð um innleiðingu þess. Í grein ComputerSweden segir að SAP hafi orðið fyrir valinu af ýmsum ástæðum. Þar á meðal stærð framleiðandans en SAP er einn stærsti viðskiptahugbúnaðarframleiðandi í heimi. Einnig réð áreiðanleiki kerfisins og fjölhæfni þess miklu við valið.

Í greininni er rætt við Juha Rantamaa, upplýsingatæknistjóra Kaupþings í Svíþjóð, og segir hann að þótt ekki sé hægt að reikna ávinninginn af þessari upplýsingatæknistefnu nákvæmlega sé ljóst að hann sé verulega mikill. Annars vegar er hagræðið við að þurfa ekki að reka mörg smærri upplýsingatæknikerfi umtalsvert og hins vegar sé vöruþróun og innleiðing nýrrar þjónustu á mismunandi mörkuðum auðveldari.

 Umfjöllun ComputerSweden má lesa í heild sinni hér