01.11.2006

Nýverið var skrifað undir samninga milli Actavis Group hf. og AppliCon ehf. um enn frekari fjárfestingu í SAP hugbúnaðinum fyrir starfsstöðvar fyrirtækisins erlendis. AppliCon ehf. er umsjónaraðili samninga sem Actavis Group gerir um SAP hugbúnað og er það staðfesting á þeirri stefnu AppliCon að aðstoða eftir fremsta megni íslensk fyrirtæki í útrás þeirra.