23.02.2007
Um þessar mundir er verið að taka í notkun nýtt SAP – ráðningakerfi hjá Akureyrabæ. Ráðningakerfið gerir umsækjendum kleift að sækja um störf hjá Akureyrabæ á heimasíðunni www.akureyri.is. Þar er nú hægt að sækja bæði um auglýst störf hjá Akureyrabæ og senda inn almennar umsóknir um störf í hinum ýmsu flokkum, t.a.m. fræðslu- og uppeldisstörf, félags- og umönnunarstörf, og skrifstofustörf.
Með þessu nýja kerfi eru teknar upp nýjar vinnuaðferðir við auglýsingu starfa, móttöku umsókna og mat á umsækjendum þar sem ferlið mun allt fara fram í SAP kerfinu.
Helstu kostirnir við nýja ráðningakerfið eru að aðgengilegra verður fyrir umsækjendur að sækja um störf hjá Akureyrabæ og að umsóknarferlið og meðferð umsókna verður þægilegri og gegnsærri fyrir stjórnendur.
Þetta kemur fram í Innanbæjar KRÓNIKU Akureyrabæjar, mars 2007.
