01.02.2008

AppliCon og Kópavogsbær hafa undirritað samning um kaup þess síðarnefnda á Mannauðs- og Launalausnum í SAP frá AppliCon. Lausnin inniheldur mannauðslausn, launalausn og launaáætlun í SAP. Að auki verður settur upp Starfsmannavefur AppliCon þar sem starfsmenn Kópavogsbæjar geta sjálfir viðhaldið grunngögnum og nálgast helstu upplýsingar er varða þeirra launamál. Hjá Kópavogsbæ, sem er annað fjölmennasta sveitarfélag landsins, starfa um 2000 manns sem munu fá laun sín greidd úr SAP lausnum frá og með sumrinu 2008.

"Eftir ítarlegan verð- og gæðasamanburð á þeim mannauðs- og launalausnum sem eru í boði á markaðnum völdum við það kerfi sem mætir þörfum sveitarfélagsins hvað best. Ekki síst var horft til þeirra framtíðarmöguleika um heildstæða lausn og fjölbreytta notkun sem SAP og AppliCon bjóða upp á. Kópavogsbær væntir mikils af samstarfinu við AppliCon sem hefur þekkingu á rekstri og starfsumhverfi sveitarfélaga en það er að mörgu leyti flóknara en í hefðbundnum fyrirtækjarekstri,“ segir Páll Magnússon, bæjarritari hjá Kópavogsbæ.?

Kópavogsbær er annað sveitarfélagið á landinu sem tekur í notkun SAP og AppliCon Sveitarfélagalausnir. Áður hefur Akureyrarbær tekið kerfið í notkun.
"Fyrir AppliCon er mikilvægt að fá stórt og öflugt sveitarfélag eins og Kópavog í hóp viðskiptavina okkar. Þetta styrkir stoðir undir áframhaldandi þróun lausnarinnar og sýnir styrk hennar á þessum markaði. Stærri sveitarfélög landsins hafa flóknar þarfir og gera miklar kröfur um gæði, virkni og öryggi þegar kemur að vinnslu launa og úrvinnslu gagna. Þessar þarfir og starfsumhverfi þekkjum við vel hjá AppliCon. Við munum halda áfram að þróa lausnir fyrir þennan geira og bindum vonir við að fleiri öflug sveitafélög innleiði SAP lausnir á næstu árum", segir, Kristján Jóhannsson, framkvæmdastjóri AppliCon.

Starfsfólk AppliCon býður Kópavogsbæ velkominn í hóp ánægðra SAP viðskiptavina.