21.04.2009
Þessa dagana býður Applicon fyrirtækjum upp á CRM ástandsskoðun þar sem Microsoft Dynamics CRM lausnin er kynnt og farið er yfir grunnþætti í starfsemi fyrirtækisins með CRM hugmyndafræðina til grundvallar. Markmiðið er að auðvelda fyrirtækjum að stíga sín fyrstu skrefin í átt til innleiðingar á CRM.
CRM ástandsskoðun er tveggja klukkustunda vinnufundur þar sem lykilstarfsmenn í fyrirtækinu þínu hafa tækifæri til að hitta CRM ráðgjafa Applicon, kynnast stuttlega Microsoft Dynamics CRM og fara í sameiningu yfir þá ferla í fyrirtækinu sem heyra undir CRM hugmyndafræðina. Ráðgjafar Applicon afhenda síðan fyrirtækinu niðurstöður CRM ástandsskoðunarinnar.
Hafðu samband við Magnús Guðjónsson, verkefnastjóra CRM lausna í síma 693 3793 eða á mag@applicon.is til að fá nánari upplýsingar og bóka tíma.
