22.04.2009

Applicon, sem er í eigu Nýherja hf., hefur verið valið besti samstarfsaðili SAP í Danmörku fyrir árið 2008. Viðurkenningin er fyrir sölu- og markaðsstarf og þekkingu á SAP lausnum. Valið náði til allra samstarfsaðila SAP í Danmörku. 

"Viðurkenningin er mikill heiður fyrir okkur og hefur verulega þýðingu fyrir sölu- og markaðsstarf félagsins," segir Ingimar G. Bjarnason framkvæmdastjóri Applicon á Íslandi. Hann segir samstarf Applicon og SAP sífellt að aukast, en sem dæmi hafi félagið verið valnn einn af þremur samstarfsaðilum SAP á Norðurlöndum til þess að annast sölu og þjónustu á Business Objects, sem er leiðandi í viðskiptagreind (Business Intelligence).

Applicon er norrænt ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki í viðskiptahugbúnaði með áherslu á SAP, Calypso og Microsoft lausnir. Applicon félögin eru fjögur talsins með starfsemi í þremur löndum, Applicon A/S og Applicon Solutions A/S í Danmörku, Applicon í Svíþjóð og Applicon ehf. á Íslandi. Um 200 ráðgjafar starfa hjá Applicon.

SAP er einn stærsti framleiðandi á viðskiptahugbúnaði í heiminum í dag en hjá fyrirtækinu starfa um 51 þúsund manns. Um 82 þúsund fyrirtæki um heim allan keyra SAP hugbúnað. Notendur eru 12 milljón talsins í 120 löndum.