30.03.2010
Íslenski angi Applicon-samstæðunnar er að rétta úr kútnum eftir áfall í kjölfar bankahrunsins. Reynslan af þjónustu við íslensku bankana nýtist nú m.a. við þjónustu fyrir breska og hollenska banka, að því er fram kemur í Viðskiptablaðinu 25. mars. Ingimar Bjarnason framkvæmdastjóri Applicon ehf. á Íslandi segir að tekist hafi að koma stöðunni í ásættanlegt horf á ótrúlega skömmum tíma.
„Það gekk mjög vel hjá okkur fjárhagslega seinni hluta síðasta árs. Við erum því bara bjartsýn á framhaldið,“ segir Ingimar.
Fyrir hrun voru starfsmenn Applicon á Íslandi flestir um 80 talsins en nú starfa þar 42 starfsmenn. Um þriðjungur fækkunarinnar skýrist af flutningi á starfsmönnum sem sinntu Microsoft-hugbúnaðarlausnum yfir til TM Software ehf., annars dótturfélags Nýherja. Svipaður fjöldi fluttist til annarra verkefna, til að mynda erlendis, en öðrum var sagt upp.
„Þetta tók um það bil sex mánuði og þá vorum við komnir á gott ról aftur. Síðustu mánuðir ársins voru svo með þeim albestu sem við höfum séð í okkar rekstri. Í dag kemur meginhluti tekna Applicon á Íslandi úr þjónustu hér innanlands en á síðastliðnu ári kom um helmingur af þjónustutekjunum erlendis frá,“ segir Ingimar.
Unnið fyrir hollenska og breska banka
Í kjölfar bankahrunsins á Íslandi hefur Applicon samt áfram reynt að nýta sér þá þekkingu sem starfsmenn öðluðust við að þjónusta bankakerfið. „Við höfum meira verið að vinna fyrir nýja banka eftir hrunið. Í Bretlandi höfum við verið að vinna fyrir Nationwide og ING í Hollandi. Það er því svolítil kaldhæðni að við skulum nú vera að vinna fyrir breska og hollenska banka. Við finnum þó ekkert annað en velvilja í okkar garð í þessum löndum. Það er eftir því tekið hjá þessum aðilum að við erum að skila góðri vinnu. Þar nýtist vel sú víðtæka þekking og reynsla sem starfsmenn okkar búa yfir,“ segir Ingimar í samtali við Viðskiptablaðið.


