07.05.2010
Miðvikudaginn 26. maí mun Applicon halda morgunverðarfund í húsakynnum fyrirtækisins Borgartúni 37. Efni fundarins verður Closing Cockpit í SAP sem tól til að halda utan um og áætla lokunar- og uppgjörsferla fyrirtækja sem nota SAP. Efni fundarins er einkar áhugavert fyrir starfsmenn fjárhagsdeilda og þeirra sem koma að uppgjörs og lokunarferlum fyrirtækja. Morgunverðarfundurinn verður nánar auglýstur síðar.
