08.07.2010
„Við höfum sótt verkefni í auknum mæli til meginlandsins, mest Bretlands, Hollands og Þýskalands en einnig hinna Norðurlandaþjóðanna. Heimamarkaðurinn minnkaði mjög hratt eftir hrun og knúði okkur til að sækja af auknum krafti með vörur okkar og þekkingu á erlenda markaði,“ segir Ingimar Bjarnason, framkvæmdastjóri Applicon á Íslandi í samtali við viðskiptablað Morgunblaðsins.
Ingimar segir Applicon hafa náð hagstæðum samningum með sölu á sérhæfðri þekkingu í Evrópu, og reiknar með að þar megi þakka samspili af hæfu starfsfólki, lágu gengi krónunnar en um leið nálægð við markaðina: „Við köllum þetta „nearshoring“ frekar en „offshoring“ því þótt hægt sé að vinna megnið af vinnunni hér á Íslandi á lágu gengi krónunnar erum við nálægt viðskiptavinum okkar og getum mætt á staðinn nánast samdægurs ef á þarf að halda,“ segir Ingimar. „Við notum meðal annars fjarfundakerfi og símann til að vera í sambandi við viðskiptavininn og starfsmenn hjá öllum starfsstöðvum Applicon geta unnið saman,“ er haft eftir Ingimar í Morgunblaðinu.