05.10.2011

Applicon hefur undirritað samning við Advent Software, fyrirtæki sem framleiðir hugbúnað sérsniðinn að þörfum fjármálafyrirtækja. Applicon verður þjónustuaðili fyrir hugbúnaðinn á Íslandi og tekur þátt í markaðssetningu hans í samstarfi við Advent. 

„Applicon hefur byggt upp mikla þekkingu á hugbúnaði fyrir fjármálamarkaði og þessi samningur er í takt við þá uppbyggingu. Við hjá Applicon erum að breikka okkar vöruframboð fyrir fjármálafyrirtæki, en Advent hugbúnaðurinn leysir þarfir sem  okkar núverandi lausnir hafa ekki leyst. Þessi hugbúnaður passar því vel inn í okkar framboð. Nú þegar eru nokkur fyrirtæki hér á landi sem nýta sér hugbúnað frá Advent í auknu mæli. Það er öllum aðilum til hagsbóta að það sé þjónustuaðili hér á landi sem annist þjónustu við hugbúnaðinn og aðlaganir fyrir íslenskan markað“ segir Guðjón Karl Þórisson, sölu- og markaðsstjóri Applicon á Íslandi.

Advent Software hefur framleitt hugbúnað fyrir fjármálafyrirtæki síðan árið 1983.
Lausnir fyrirtækisins hentar jafnt alþjóðlegum fjárfestingarfyrirtækjum sem og minni fyrirtækjum í eignastýringu.
Advent hefur fest sig í sessi sem leiðandi fyrirtæki á þessum markaði með lausnir sem uppfylla þarfir fjármálafyrirtækja á sviði eignastýringar.

News in english

Hér má finna heimasíðu Advent