Hvernig fá stjórnendur yfirsýn yfir launakostnað og þróun hans með einföldum og skjótum hætti?
Applicon Laun
Applicon Laun er launalausn sem er sérsniðin að þörfum íslenskra fyrirtækja. Lausnin er fullkomlega samþætt öðrum kerfishlutum frá Applicon og vinnur sérstaklega vel með mannauðslausninni. Samþætting við önnur kerfi sem notuð eru við launaútreikninga, t.d. tímaskráningu og bókhald, er jafnframt mjög góð.
Helstu eiginleikar
- Sveigjanlegir notkunarmöguleikar.
- Auðvelt að nálgast allar launaupplýsingar.
- Aukin sjálfvirkni launauppgjöra.
- Fullkomlega samþætt öðrum kerfishlutum SAP.
- Fullgild fyrir sveitarfélög og sjávarútvegsfyrirtæki.
Helsti ávinningur
- Íslensk reiknivél.
- Hraðvirk vinnsla.
- Sjálfvirk söguskráning gagna.
- Áætlanagerð aðgengileg.
- Öflugar aðgangsstýringar.
- Markvisst og áreiðanlegt innleiðingarferli.