Hvernig geta launagreiðendur greitt laun í erlendri mynt í íslensku launakerfi?
Applicon Laun í erlendri mynt
Applicon Laun er íslenskt launakerfi með alíslenskri reiknivél. Reiknivélin er mjög sveigjanleg og býður meðal annars upp á að reikna út laun út frá erlendri mynt en setja fram allar afleiddar færslur í íslenskum krónum. Þetta gildir hvort heldur er fyrir einstaka starfsmenn eða alla starfsmenn fyrirtækis. Frádráttur starfsmanna og mótframlög launagreiðanda eru í íslenskum krónum og skilast þannig til allra innheimtuaðila. Útborguð laun starfsmanna eru hins vegar í erlendri mynt og greiðast beint inn á gjaldeyrisreikninga starfsmanna.
Helstu eiginleikar
- Sveigjanleg reiknivél.
- Einstaklingsbundnar forsendur eða sömu forsendur fyrir alla.
- Öll laun eða hluti launa í erlendri mynt.
- Fullgild fyrir alla launagreiðendur þar með talið sveitarfélög og sjávarútvegsfyrirtæki.
- Auðveld uppsetning.
Helsti ávinningur
- Engin handavinna við launaútreikning.
- Þægileg skýrslugerð.
