Hvernig geta fyrirtæki einfaldað upplýsingagjöf til starfsmanna sinna og gert þeim kleift að viðhalda eigin persónuupplýsingum?
Applicon Starfsmannavefur
Applicon Starfsmannavefur er notendavæn veflausn sem byggir á Applicon Mannauði og Applicon Launum. Vefurinn getur staðið einn og sér eða verið hluti af innraneti viðkomandi fyrirtækis.
Með innleiðingu á Applicon Starfsmannavef eykst til muna aðgengi starfsmanna að eigin upplýsingum og grunnupplýsingum um aðra starfsmenn. Með notkun lausnarinnar dregur einnig úr álagi á starfsfólki starfsmanna- og launadeilda þar sem minni tími fer í að veita upplýsingar sem starfsmenn geta nú nálgast sjálfir og meiri tími skapast til virðisaukandi verka.
Helstu eiginleikar
- Birting og viðhald á heimilisföngum, samskipta- og fjölskylduupplýsingum
- Birting og viðhald á námsferli, starfsferli og hæfni
- Birting launaseðla, orlofsstöðu og veikindadaga. Óskir um orlof auk birtingar og viðhalds á bankaupplýsingum
- Skráning og afskráning á námskeið í boði, leit að námskeiðum auk yfirlits yfir “Mín námskeið” og símenntunaráætlanir
- Starfsmannalisti, afmælisbörn dagsins og nýir starfsmenn
Helsti ávinningur
- Minna álag á starfsmannadeildir vegna viðhalds starfsmanna á eigin upplýsingum
- Minna álag á launadeildir þar sem starfsmenn geta sjálfir nálgast ýmsar launatengdar upplýsingar
- Betri upplýsingagjöf þar sem hægt er að nálgast ákveðnar upplýsingar um aðra starfsmenn
