Hjá Applicon starfa um 160 reynslumiklir ráðgjafar, þar af um 50 á Íslandi.
Ráðgjafar Applicon búa yfir mikilli reynslu og þekkingu af hugbúnaðarlausnum í SAP, Vigor lausnum og Microsoft umhverfi sem gerir starfsmönnum fyrirtæksins kleift að leysa flókin úrlausnarefni viðskiptavina sinna. Þá fylgjast sérfræðingar Applicon afar náið með nýjustu straumum og stefnum og endurmenntun starfsfólks er gerð með markvissum hætti.
Applicon leggur áherslu á að bjóða upp á yfirgripsmikla þekkingu á SAP, Vigor lausnum og Microsoft tækni. Það er Applicon mikið í mun að skilja rekstur viðskiptavina sinna og þá ferla sem unnið er eftir til þess að tryggja viðskiptavinum allan þann ávinning sem getur falist í fjárfestingu í upplýsingatækni.
Applicon hefur náð góðum árangri með viðskiptavinum sínum undanfarin ár við innleiðingar á SAP viðskiptahugbúnaði, Vigor lausnum og samþættingu upplýsingatæknikerfa. Ráðgjafar Applicon hafa mikla reynslu af störfum sínum innan fjármálastofnanna, í sjávarútvegi, orkugeiranum, hjá sveitarfélögum, hjá tryggingafélögum og þjónustufyrirtækjum. Úr þessari sérþekkingu hafa orðið til tilbúnar lausnir sem flýta innleiðingu og skila fyrr arðsemi af fjárfestingu í upplýsingatækni.
Stefna Applicon er að skapa skilvirkustu lausnina fyir viðskiptavininn. Í gegnum samstarf við erlend ráðgjafafyrirtæki hefur Applicon skapað tengsl sem nauðsynleg eru til að þjónusta viðskiptavini eins og best verður á kosið. Þannig býðst viðskiptavinum Applicon aðgangur að samstarfsaðilum með sérhæfða þekkingu á ákveðnum sviðum þegar á þarf að halda.
