“Ég vil lýsa yfir einstakri ánægju með innleiðinguna, hún stóðst eins og stafur við bók og hefur verið einhver árangursríkasta uppsetning hugbúnaðar hjá Actavis”
Úlfar Helgason, deildarstjóri upplýsingatæknisviðs Actavis hf.
SAP Launa lausnin reynist vel “SAP Launa lausnin hefur reynst vel enda felur hún í sér tímasparnað og veitir betri aðgang að stjórnendaupplýsingum sem leiðir til aukinnar skilvirkni.”
Ásgerður Th. Björnsdóttir, framkvæmdastjóri SÁÁ
"SAP starfsmannakerfið hefur reynst Actavis á Íslandi vel. Notkun kerfisins og samhæfing sparar okkur tíma og gerir okkur kleift að ná góðri yfirsýn yfir fyrirtækið frá mismunandi sjónarhornum. Við getum í dag brugðist hratt við kröfum stjórnenda um mismunandi tölfræði upplýsingar um allt er lýtur að starfsmannamálum. Starfsmenn hafa einnig aðgang að eigin upplýsingum og geta sjálfir viðhaldið sínum persónulegu gögnum. Kerfið styður vel við alla okkar ferla í kringum starfsmenn. Samhæfing við kerfi tölvudeildar einfaldar móttöku nýrra starfsmanna og eykur öryggi þegar starfsmenn flytjast til eða yfirgefa fyrirtækið."
Kolbrún Reynisdóttir, Human Resource Division, Actavis
Væntingar okkar fyllilega staðist. “Við tókum SAP starfsmanna- og launakerfi í notkun hjá Skeljungi hf. á árinu 2002. Við lögðum af stað með þær væntingar að fá kerfi sem væri einföld í notkun, skráning starfsmanna færi fram á einum stað og að einfalt væri að nálgast upplýsingar úr þeim. Reynsla okkar af kerfunum hefur verið mjög góð og væntingar okkar fyllilega staðist. Helstu kostir SAP: Skráning starfsmannaupplýsinga fer fram einu sinni og utanumhald er á einum stað (ss. Persónulegar upplýsingar, menntun, ráðningarsamningar, áminningar, starfsaldursdagsetningar, launaupplýsingar o.s.frv.). Launakerfið er sveiganlegt og þægilegt í notkun. Hægt er að skoða ýmis gögn án þess að fara út úr kerfunum því einfalt er að bæta við gluggum. Auðvelt er að nálgast uppýsingar úr kerfunum og taka út skýrslur í Excel. Kerfin nýtast vel sem stjórnendatæki og einfalda verulega alla upplýsingaöflun. Kerfin eru sérstaklega notendavæn og skemmtileg að vinna með. Tímon (tímaskráningarkerfi) sem Skeljungur notar vinnu mjög vel með SAP. AppliCon lausnin fellur vel að þeim kröfum sem íslensk fyrirtæki gera til mannauðskerfa.”
Rebekka Ingvarsdóttir, starfsmannastjóri Skeljungs.
Emphasis on small and medium-sized companies. "The main ambition of our group is to offer our clientele quality banking services in each of the countries in which we operate. The service offered should be unified across our offices and represent a serious alternative to other pan-Nordic operators in the field of investment and merchant banking, with a special emphasis on small and medium-sized companies, institutions and international private banking" Sigurdur Einarsson - Executive Chairman, Kaupthing Bank „We at Kaupthing decided to use the AppliCon e-services as the framework for our Internetbased products in conjunction to the SAP Core Banking platform. The framework has simplified the communication between SAP and the Internet services we provide while the presentation layer has been the flexible platform we anticipated. AppliCon’s support and know-how helped us during the process of implementing the Internet platform and has been an important factor in our success.“
Ingimundur Árnason, Director Kaupthing Edge
Nýherji tekur upp Applicon Bankatengingar. "Nýherji hefur notað Bankatengingu Applicon með ágætum árangri í nokkurn tíma. Lausnin er notendavæn, örugg og fljótvirk. Ráðgjöfum Applicon ehf. þakka ég góða vinnu og aðstoð."
Halldóra G. Ragnarsdóttir, gjaldkeri Nýherja.
Ákvörðun um innleiðingu SAP hjá Avant grundvallaðist fyrst og fremst á öflugu kerfi sem býður uppá staðlaðar lausnir því kröfur um réttleika gagna eru miklar. Því til viðbótar nýtum við okkur staðlaðar viðbætur Applicon, m.a. á sviði rafrænna samskipta við bankana. Kerfið var tekið í notkun árið 2007 og er í raun kjarninn í starfsemi Avant. Þétt samhæfing fjárhags- og lánakerfis tryggir réttar og tímanlegar upplýsingar á hverjum tíma.
Úlfar Helgason, forstöðumaður upplýsingatækni Avant
Þjónusta Applicon. Fjármálaheimurinn er síbreytilegur, sem aftur krefst stöðgrar aðlögunar kerfa og því er afar mikilvægt að hafa Applicon sem bakhjarl í framþróun kerfisins. Applicon hefur ávallt státað af úrvals starfsfólki sem þekkir kerfið vel og veitir framúrskarandi þjónustu. Við höfum mörg dæmi um það hvernig Applicon hefur brugðist skjótt og vel við beiðnum okkar, nú síðast vegna úrræða hins opinbera varðandi greiðsluaðlögun.
Úlfar Helgason, forstöðumaður upplýsingatækni Avant
Þjónusta Applicon. Applicon státar af framúrskarandi starfsfólki sem hefur metnað til að gera hlutina vel og að veita fyrirmyndarþjónustu. Ef upp koma spurningar þá hefur Húsasmiðjan haft greiðan aðgang að tengiliðum hjá Applicon sem eru fljótir að leysa úr þeim málum sem upp hafa komið.
Elín Hlíf Helgadóttir, starfsmannastjóri Húsasmiðjunnar
Samþætting launa- og mannauðskerfis. SAP - Laun og mannauðskerfi hafa nú verið í notkun hjá Akureyrarbæ í 10 mánuði. Mikil þróunarvinna hefur farið fram á þessum tíma til að aðlaga kerfin þörfum sveitarfélagsins sem greiðir í hverjum mánuði laun til rúmlega 2.000 launþega sem taka laun eftir nærri 40 kjarasamningum. Reynslan af þessum kerfum lofar góðu og allt bendir til þess að sveitarfélagið muni ná þeim markmiðum sínum að færa mannauðsstjórnun til betra horfs með því að bæta aðgengi stjórnenda og starfsmanna að upplýsingum og gera launaútreikning og launaáætlanir skilvirkari og einfaldari. Meðal kosta sem SAP - Laun hafa umfram fyrra kerfi er samþætting launa- og mannauðskerfis sem dregur úr tvískráningu og gefur möguleika á dreifðari skráningu upplýsinga, jafnvel í gegnum Netið. Umsókn um starf á Netinu getur skilað persónuupplýsingum inn í SAP-kerfi, gert miðlæga skráningu einfaldari og fært ábyrgð á viðhaldi ýmissa upplýsinga til stjórnenda og starfsmanna sjálfra. Umfram allt er fyrirsjáanlegt að öll mannauðsstjórnun verður markvissari með tilkomu mannauðskerfisins þar sem halda má utan um upplýsingar um fræðslumál starfsmanna og alla starfsþróun. Innleiðingarvinnan hefur vissulega verið krefjandi og í því sambandi er full ástæða til að ljúka lofsorði á starfsfólk Applicon fyrir jákvæða afstöðu, góðan vilja og getu til að leysa úr hverjum þeim vanda sem upp hefur komið. Samstarfið hefur verið afar ánægjulegt þegar á heildina er litið.
Halla Margrét, starfsmannastjóri Akureyrarbæjar
Húsasmiðjan tók SAP x-press mannauðskerfið í notkun árið 2005. Innleiðingin var vel skipulögð af hálfu starfsmanna Applicon og gekk hún mjög vel. Að innleiðingu lokinni tók við þróunarvinna og SAP-kerfið lagað þörfum Húsasmiðjunnar og þeim kerfum sem í notkun eru. Með tilkomu SAP-kerfisins eru allir þættir mannauðsstjórnunar skilvirkari þar sem allar upplýsingar um starfsmenn eru á einum stað auk þess sem SAP-kerfið hefur einfaldað mjög alla launavinnslu. Helstu kostir kerfisins eru einn gagnagrunnur og ekki þarf að lesa gögn á milli kerfa. Þá eru grunngögn og uppfærsla starfsmanna á einum stað. SAP-kerfið hefur gert okkur hjá Húsasmiðjunni kleift að taka út ýmsa lista tengdum starfsmönnum á auðveldan og aðgengilegan hátt s.s. nafnalista, aldursdreifingu, kynjalista, lista vegna jólagjafa o.m.fl. auk þess sem kerfið heldur utan um sögu starfsmanna. SAP-kerfið vinnur vel með Excel og því auðvelt að flytja alla lista tengda starfsmönnum beint yfir í excel.
Elín Hlíf Helgadóttir, starfsmannastjóri Húsasmiðjunnar
Við höfum einsett okkur að ná langtíma samningum við okkar birgja og samstarfsaðila en þannig viljum við horfa fram á veginn og tryggja að bankinn hafi aðgang að færum ráðgjöfum og samstarfsaðilum. Við leggjum áherslu á trausta og faglega birgja sem geta stutt okkur í þeirri uppbyggingu sem framundan er í vaxandi samkeppnisumhverfi og alþjóðavæðingu.
Gísli Heimisson, framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Glitnir
Heildarlausn í mannauðskerfum. Við völdum SAP sem launakerfi, launaáætlunarkerfi, ráðningar- og mannauðskerfi. SAP inn hefur reynst traustsins verður og svarar óskum okkar um heildarlausnir í mannauðskerfum. Fólkið sem þjónustar okkur hjá Applicon hefur reynst okkur einstaklega vel og auðveldað innleiðinguna á hugbúnaðinum. Með tilkomu SAP sins varð mögulegt fyrir stjórnendur að sækja sínar launa- og mannauðsupplýsingar án milligöngu starfsmannadeildar.
Þorsteinn Einarsson, starfsmannastjóri Kópavogsbæjar
Nýherji tekur upp Applicon Kröfukerfi. "Nýherji sendir út mikið magn af greiðsluseðlum í hverjum mánuði. Okkar reynsla af Applicon Kröfukerfi hefur verið mjög góð. Kerfið er fljótvirkt og hefur notendavænt viðmót. Ráðgjöfum Applicon þökkum við frábæra vinnu og aðstoð við uppsetningu kerfisins hjá okkur."
Margrét Sverrisdóttir og Nanna Pálsdóttir, starfsmenn Nýherja
Applicon Kröfukerfi „Með kröfukerfi Applicon erum við búin að tengja saman upplýsingar frá viðskiptabanka okkar og bókhaldskerfinu okkar. Kominn er grundvöllur fyrir beinlínutengingu sem gerir okkur kleift að vinna á rauntímaupplýsingum bankans, bæði hvað varðar kröfuupphæð og vexti. Auk þess eru forsendur fyrir þjónustukaupum og öðrum samskiptum við ytri aðila gjörbreytt. Yfirsýn í formi greiningar og áætlunargerðar er nú til staðar sem nýtist beint bæði fyrir innheimtu og sjóðsstýringu. Afstemming og eftirlit er einfaldara og öll þjónusta gagnvart viðskiptavinunum. Kröfukerfið er því mikilvægt verkfæri fyrir Sjóvá til sækja fram og auka þjónustuna enn frekar.“
Páll Skaftason, forstöðumaður fjármálasvið Sjóvá.
Viðverulausn SAP frá 2006 "Sjóvá hefur notað Viðverulausn SAP frá 2003. Kerfið hjálpar okkur að halda utan um alla þætti í viðveru og fjarveru starfsmanna sem gerir okkur kleift að veita okkar ytri viðskiptavinum enn betri þjónustu. Starfsmenn fylgjast sjálfir með réttindum sínum í kerfinu sem uppfærist sjálfkrafa. Kerfið er einfalt, sveigjanlegt og býður upp á allt það sem nútíma fyrirtæki þarf á að halda til að halda uppi góðu þjónustustigi og einfaldleika. Þetta er klárlega besta viðverulausn á landinu."
Auður Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Sjóvá
Innleiðing SAP hjá Samherja hf. “SAP-hugbúnaðarkerfi var tekið í notkun hjá Samherja snemma árs 2003. Með tilkomu kerfisins gerbreyttist upplýsingaflæði í félaginu til hins betra. Kerfið auðveldar áætlanagerð og eykur alla yfirsýn yfir framleiðsluna og reksturinn. Allt frá því að ákvörðun um innleiðingu kerfisins var tekin höfum við aldrei horft til baka og ég er í dag sem fyrr sannfærður um að við tókum rétta ákvörðun”
Úr ræðu Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra Samherja á aðalfundi árið 2004
Innleiðing SAP hjá Samherja hf. “Ég verð að játa að ég hef aldrei heyrt um innleiðingu jafn viðamikils kerfis sem gengið hefur jafn vel og þarna hefur átt sér stað. Mér finnst sérstök ástæða til að óska starfsmönnum Samherja, sem þarna stóðu að verki til hamingju með þennan árangur svo og Nýherja h/f. sem kerfið er keypt af.”
Úr ræðu Finnboga Jónssonar stjórnarformanns Samherja hf. á aðalfundi í apríl 2003
Listasmiðjan er allt sem nafnið gefur til kynna. Þvílík list og hún er algjör smiðja af upplýsingum. Við notum Listasmiðjuna í að samþykkja launin hjá Skeljungi og gengur það mjög vel þar sem Listasmiðjan er mjög notendavæn. Fyrirspurnum um orlof, veikindi og annað hefur minnkað þar sem þetta er mjög aðgengilegt fyrir stjórnendur í Listasmiðjunni. Ég mæli eindregið með Listasmiðjunni fyrir þá sem eru með SAP þar sem upplýsingar nýtast betur vegna þess hve notendavæn og myndræn Listasmiðjan er.
Guðný Hansdóttir, Starfsmannastjóri Skeljungs
„Tryggingamiðstöðin hefur um árabil notað Vigor fjárhagskerfið með góðum árangri. Þjónusta við kerfið og samvinna um þróun þess hefur verið með ágætum.“
Óskar B. Hauksson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
„Ég nota Vigor Topplaun hjá Akraneskaupstað og líkar það vel. Launakerfið hentar vel stórum fyrirtækjum með marga starfsmenn á launaskrá. Þjónustan er til fyrirmyndar og alltaf leyst fljótt og vel úr þeim fáu vandamálum sem upp koma. Ég er mjög ánægð með fjölbreyttar Excel fyrirspurnir og ýmsar vinnslur varðandi orlofsmál og launauppbætur. Akraneskaupstaður gekk nýlega frá samningi við Vigor um vistun á Topplaunum og varð algjör bylting hvað varðar umtalsverðan aukinn vinnsluhraða í launakeyrslum. Ég mæli hiklaust með Topplaunum frá Vigor.“
Ásdís Súsanna Gunnarsdóttir, deildarstjóri launadeildar, Akraneskaupstaðar
„Orkuveita Reykjavíkur hefur notað orkureikningakerfið Vigor Orku frá árinu 1999. Á þessum tíma hefur kerfið tekið miklum breytingum og er stærsta breytingin tilkomin vegna samkeppni í raforkusölu. Í hraða nútímans er lykilatriði að geta brugðist hratt og örugglega við breyttum aðstæðum og stendur Vigor svo sannarlega undir þeim kröfum.“.
Þorbjörg Bjarnadóttir, deildarstjóri gagnavinnslu Orkuveitu Reykjavíkur
Skagafjarðarveitur ehf. (Skv.) hafa verið með hugbúnað frá Vigor frá árinu 1998, fyrst Orkuhlutann og síðan allan viðskiptahugbúnað sem þarf til reksturs Orkuveitunnar. Góð reynsla er af viðskiptum við fyrirtækið og kostur að allur hugbúnaðurinn er frá sama aðilanum. Vigor kerfin bjóða upp á fjölbreyttar lausnir sem Skv. nýtir sér og á eftir að nýta sér í framtíðinni. Á síðasta ári fóru Skv. einnig í Vistun hjá Vigor en fram að þeim tíma rak fyrirtækið eigin vélbúnað. Þetta hefur aukið rekstraröryggi kerfisins til muna, uppitími kerfis verið 100% og afköst vélar og hraði aukist.
Páll Pálsson, veitustjóri Skagafjarðarveitu
