Akureyrarbær er fjórða fjölmennasta sveitarfélag Íslands og það fjölmennasta utan höfuðborgarsvæðisins.

Umsagnir viðskiptavina

  • Samþætting launa- og mannauðskerfis. SAP - Laun og mannauðskerfi hafa nú verið í notkun hjá Akureyrarbæ í 10 mánuði. Mikil þróunarvinna hefur farið fram á þessum tíma til að aðlaga kerfin þörfum sveitarfélagsins sem greiðir í hverjum mánuði laun til rúmlega 2.000 launþega sem taka laun eftir nærri 40 kjarasamningum. Reynslan af þessum kerfum lofar góðu og allt bendir til þess að sveitarfélagið muni ná þeim markmiðum sínum að færa mannauðsstjórnun til betra horfs með því að bæta aðgengi stjórnenda og starfsmanna að upplýsingum og gera launaútreikning og launaáætlanir skilvirkari og einfaldari. Meðal kosta sem SAP - Laun hafa umfram fyrra kerfi er samþætting launa- og mannauðskerfis sem dregur úr tvískráningu og gefur möguleika á dreifðari skráningu upplýsinga, jafnvel í gegnum Netið. Umsókn um starf á Netinu getur skilað persónuupplýsingum inn í SAP-kerfi, gert miðlæga skráningu einfaldari og fært ábyrgð á viðhaldi ýmissa upplýsinga til stjórnenda og starfsmanna sjálfra. Umfram allt er fyrirsjáanlegt að öll mannauðsstjórnun verður markvissari með tilkomu mannauðskerfisins þar sem halda má utan um upplýsingar um fræðslumál starfsmanna og alla starfsþróun. Innleiðingarvinnan hefur vissulega verið krefjandi og í því sambandi er full ástæða til að ljúka lofsorði á starfsfólk Applicon fyrir jákvæða afstöðu, góðan vilja og getu til að leysa úr hverjum þeim vanda sem upp hefur komið. Samstarfið hefur verið afar ánægjulegt þegar á heildina er litið.
    Halla Margrét, starfsmannastjóri Akureyrarbæjar