Skeljungur er framsækið og sveigjanlegt þjónustu- og verslunarfyrirtæki með starfsemi á um 100 stöðum á landinu. Samningar félagsins við alþjóðlegu Shell samsteypuna veitir Skeljungi rétt á notkun Shell vörumerkisins á Íslandi og greiðan aðgang að nýjungum í tækni- og vöruþróun eins stærsta olíufélags heims.
Umsagnir viðskiptavina
-
Listasmiðjan er allt sem nafnið gefur til kynna. Þvílík list og hún er algjör smiðja af upplýsingum. Við notum Listasmiðjuna í að samþykkja launin hjá Skeljungi og gengur það mjög vel þar sem Listasmiðjan er mjög notendavæn. Fyrirspurnum um orlof, veikindi og annað hefur minnkað þar sem þetta er mjög aðgengilegt fyrir stjórnendur í Listasmiðjunni. Ég mæli eindregið með Listasmiðjunni fyrir þá sem eru með SAP þar sem upplýsingar nýtast betur vegna þess hve notendavæn og myndræn Listasmiðjan er.
Guðný Hansdóttir, Starfsmannastjóri Skeljungs
-
Væntingar okkar fyllilega staðist.
“Við tókum SAP starfsmanna- og launakerfi í notkun hjá Skeljungi hf. á árinu 2002.
Við lögðum af stað með þær væntingar að fá kerfi sem væri einföld í notkun, skráning starfsmanna færi fram á einum stað og að einfalt væri að nálgast upplýsingar úr þeim. Reynsla okkar af kerfunum hefur verið mjög góð og væntingar okkar fyllilega staðist.
Helstu kostir SAP:
Skráning starfsmannaupplýsinga fer fram einu sinni og utanumhald er á einum stað (ss. Persónulegar upplýsingar, menntun, ráðningarsamningar, áminningar, starfsaldursdagsetningar, launaupplýsingar o.s.frv.).
Launakerfið er sveiganlegt og þægilegt í notkun.
Hægt er að skoða ýmis gögn án þess að fara út úr kerfunum því einfalt er að bæta við gluggum.
Auðvelt er að nálgast uppýsingar úr kerfunum og taka út skýrslur í Excel.
Kerfin nýtast vel sem stjórnendatæki og einfalda verulega alla upplýsingaöflun.
Kerfin eru sérstaklega notendavæn og skemmtileg að vinna með.
Tímon (tímaskráningarkerfi) sem Skeljungur notar vinnu mjög vel með SAP.
AppliCon lausnin fellur vel að þeim kröfum sem íslensk fyrirtæki gera til mannauðskerfa.”
Rebekka Ingvarsdóttir, starfsmannastjóri Skeljungs.

