Húsasmiðjan er fyrirtæki í sölu á byggingavörum og starfrækir Húsasmiðjuverslunir um allt land.
Umsagnir viðskiptavina
-
Húsasmiðjan tók SAP x-press mannauðskerfið í notkun árið 2005. Innleiðingin var vel skipulögð af hálfu starfsmanna Applicon og gekk hún mjög vel. Að innleiðingu lokinni tók við þróunarvinna og SAP-kerfið lagað þörfum Húsasmiðjunnar og þeim kerfum sem í notkun eru.
Með tilkomu SAP-kerfisins eru allir þættir mannauðsstjórnunar skilvirkari þar sem allar upplýsingar um starfsmenn eru á einum stað auk þess sem SAP-kerfið hefur einfaldað mjög alla launavinnslu. Helstu kostir kerfisins eru einn gagnagrunnur og ekki þarf að lesa gögn á milli kerfa. Þá eru grunngögn og uppfærsla starfsmanna á einum stað.
SAP-kerfið hefur gert okkur hjá Húsasmiðjunni kleift að taka út ýmsa lista tengdum starfsmönnum á auðveldan og aðgengilegan hátt s.s. nafnalista, aldursdreifingu, kynjalista, lista vegna jólagjafa o.m.fl. auk þess sem kerfið heldur utan um sögu starfsmanna. SAP-kerfið vinnur vel með Excel og því auðvelt að flytja alla lista tengda starfsmönnum beint yfir í excel.
Elín Hlíf Helgadóttir, starfsmannastjóri Húsasmiðjunnar
-
Þjónusta Applicon.
Applicon státar af framúrskarandi starfsfólki sem hefur metnað til að gera hlutina vel og að veita fyrirmyndarþjónustu. Ef upp koma spurningar þá hefur Húsasmiðjan haft greiðan aðgang að tengiliðum hjá Applicon sem eru fljótir að leysa úr þeim málum sem upp hafa komið.
Elín Hlíf Helgadóttir, starfsmannastjóri Húsasmiðjunnar

